Valmynd

Meðferð hjá Sköpun
Boðið er upp á einstaklings og hópmeðferðir fyrir börn, unglinga og fullorðna.

Markmið listmeðferðar er :
  • að þróa persónulega tjáningu og koma sterkum tilfinningum frá sér á uppbyggjandi hátt.
  • að efla meðvitund um eigin tilfinningar, hugsanir og viðbrögð.
  • að auðvelda tengingu tilfinninga og hugsana.
  • að styrkja frumkvæði og sjálfstæði.
  • að efla traust og skilning einstaklingsins á sjálfum sér og öðrum.
                                                    
 
 
Markmið hópmeðferðar er :
  • að efla félagslega virkni einstaklingsins og skilning á sjálfum sér og öðrum í hóp.
  • að efla eigið sjálfstraust og getu til að treysta öðrum.
  • að geta tjáð hugsanir sínar og upplifanir og deila þeim með öðrum.
 
 
 
 
 
Markmið listmeðferðar með börnum og unglingum felst í því :
  • að styrkja sjálfsmynd barnsins/unglingsins.
  • að læra að þekkja tilfinningar sínar og eigin viðbrögð.
  • að geta tengt tilfinningar og hugsanir.
  • að styrkja frumkvæði, hugmyndaflug og sjálfstæði.
  • að þróa persónulega tjáningu og koma sterkum tilfinningum frá sér á uppbyggilegan hátt.
  • að auka jákvæð samskipti.